Föstudags-póstur

Vikan er senn á enda og helgin tekur á móti okkur með opnum örmum. Ég hef uppá síkastið verið að vinna að vefsíðugerð í samstarfi við WordPress. Eins og sést er ekki mikið af verkum inná Portfolio-síðunni en ég bæti úr því seinna. Þetta er allt í vinnslu.

Ástæðan fyrir því að ég skrifa hér er persónuleg. Ég hef áhuga á að viðra hugsanir mínar öðrum, í von um skilning…Þetta hljómaði kannski of dramatískt. Oh, well.

Takk fyrir að kíkja hingað. Ég set dæluna af stað von bráðar, drita allskyns verkum hér inn og jafnvel eh ljóðatengt-stöff.

Bless í bili,

Sonja Sigurðardóttir