Laugardagurinn 22. Okt 2022
Ég minnist þess þegar ég var í píanótímum í Grundarfirði. Tón kennarinn minn á þeim tíma var Þórður bassaleikari með fleiru. Við sátum. Ég var nýbúin að spila eh sonatínu og þá spurðí hann mig; En Sonja, hvað langar þig að gera?
Þessi spurning kom svolítið flatt uppá mig. Hugsaði um stund. Ég man þó ekki hverju ég svaraði. Einhver afsökun e.t.v. Ég hafði nefninlega alla daga frá þessu spilað helst bara fyrir aðra, en aldrei eingungis fyrir sjálfa mig. Sviti og tár við klassíkina, pirringur og líka gleði og ánægja…
Afhverju gerum við hlutina? Hvað drífur? Spái um þetta um stund. Spái í þessu. Að spá er ekkert grín. Ég sá Siggu Kling í sjónvarpinu í gærkvöldi. Hún var hress að vanda. Góðir þættir ,Kappsmál’ á RÚV. Kunni ekki að meta þá fyrst en þeir ,vaxa á mann’ eins og þeir segja á ensku.
Helgin er ljúf. Sunnudagur á morgun.
Takk fyrir.
-Sonja