Góðan dag.
Fössari í dag. Hef um margt að hugsa þessa dagana. Orkuvirkni í hámarki. Fyrir 1-2 mán síðan var ég að skríða framúr um 2-4 leytið, þ.e. Í seinnipart dagsins. Ekki svo snemmt það.
Ég velti því oft fyrir mér hvernig orkuvirkni virkar. Meiri orka, minni orka. Hvað veldur..? Það eru eflaust margir faktorar sem spila saman, en eitt er víst; orkan er breytileg. Því má ekki leyna.
Hugleiðingar í morgunsárið. Journal er öllum hollt að tileinka sér, að mér finnst. Og stóik-unum líka. Hjálpa til að hreinsa hugann, hreinsa loftið í kring og skýra hlutina. Get-some-clearity.
Bestu kv.
SONJA