Sunnudagurinn 30. Nóv 2022
Sælir/ar,
Tveir mánuðir í jólahátíðina. Einn mánuður í tímamót hjá mér. Já 30 árin eru að læðast aftan að mér og ég fæ gusu yfir mig.
Beðið um skilríkin.
,Já, þetta er ég.’
Labba út með bjór og sterkt í litlum poka.
Það er teiti annað kvöld og ég ætla sko að vera með á nótunum. Drekk í mig bjórinn allt kvöldið og súpa fingibjargir af sterkum ópal eða íslenskum Jager.
Þetta voru unglingsárin. Byrjaði sjálf reyndar ,seint’ að drekka eða um 18 ára aldurinn. Drakk samfleytt í ca. 6 ár samfleytt. Eða kannski ekki samfleytt. Aðallega um helgar og á góðum stundum við vinum og fjölskyldu.
Fyrir nokkrum árum setti ég tappann í flöskuna um sinn. Það tengdist aðallega mínum veikindum. Svo vildi ég líka vera talin alvarlega meðal lækna og annars fólks í kringum mig. Oft er nefninlega hægt að benda bara á áfengisneysluna og firra sig allri ábyrgð. Það vildi ég ekki fyrir sjálfa mig.
Það sem ég er að reyna að segja; Hvað? Jú. Þú finnur þetta hjá sjálfum þér/sjálfri þér. Ég hvet alla til að taka sér pásu við og við og sjá hvernig fer. Félagskvíðinn /stress/almennur kvítði, hann fer í hámark, en þú ert allavegana með á nótunum.
Megi þið eiga góðan sunnudag,
Bkv.
Sonja