Mánudagur til lukku…?
Mondays of meaning, eins og Jordan Peterson félagi minn segir…
Alltaf hægt að læra eitthvað nýtt og tileinka sér nýja hluti. Ekki er svo gott að kenna gömlum hundi að sitja, en þó mögulegt. Eða það segja þeir.
Gott að vera komin á fætur snemma. Finn mikinn mun á mér eftir ég byrjaði að vakna fyrr og borða próteinríka fæðu, fljótlega eftir að ég fer á fætur. Í dag drekk ég reyndar vatn með chia-fræum og smá sítrónusafa útí. Svo má ekki gleyma kaffinu. Það er allra meina bót, vil ég meina.
Hvað er framundan í vikunni…? Sama gamla. Líklegast mæti ég til vinnu í miðri vikunni, þurfti að taka mér veikindafrí í síðustu viku þar sem ég var mjög slöpp og þurfti pásu.
Ég óska ykkur góðrar viku kæru lesendur,
Skilið endilega eftir athugasemdir/comment, ef einhverjar eru.
Bkv.
Sonja Sigurðardóttir