Góðan dag kæru lesendur.
Það er langt um liðið síðan hér birtist færsla. Það hefur verið um mikið að snúast á síðustu misserum.
Ég ætla ekki að fara yfir fréttir í þetta skiptið, en langaði að segja ykkur svolítið frá mínu persónulega lífi.
Endurhæfing gengur vel. Hef verið að vinna smá í kaffiteríunni í Háskóla Íslands til hliðar, og líkar vel. Ég hef nægan tíma til að taka ,studio-time’ hérna heimafyrir. Á döfinni er að leira/móta. Ég er að leita mér að aðstöðu, hugsanlega á Grundarfirði, þar sem smá subb er leyfilegt. Það er ekki svo gott að vera með leirinn hérna inní þessari litlu íbuð. Gæti orðið subbulegt. En hvað um það, hef mikinn áhuga á rauðum leir eða terra cotta, þessa stundina.
Virkni hefur verið yfir meðallagi þennan mánuðinn og ég finn hvað mér líður betur, þegar eh er fyrir stafni. Það er dýrmætt að hafa hlutastarf sem og virkni-tíma á vegum Landsspítalans.
Er svolítið snemma á fótum í dag. En vonandi skilar þessi færsla sér, einhvert.
Takk fyrir að lesa,
Sonja Sigurðardóttir