Sólarlegur Sunnudagur

Það fer að líða að hausti…Smá sumar í dós var þetta jú víst. Úrkomumet slegið í Grundarfirði og rólegheit að vanda.

Hvað gerir sumarið að sumri…? Hvað gerir vorið að vori…? Hausti? Veturinn…?

Það er svo ótal margt sem við notum þegar við ,mælum’ sumarið í huga okkar eða höndum: Ný slegið gras; illgresi í tonnavís, lyktin í loftinu, úrkoman, vindurinn, andrúmsloftið í heild…

Haustið og litirnir. Veturinn og sólar missirinn. Vorið og pönnukökurnar. Sumarið, og já…

Hugleiðingar til betri tíma.