5/01/25
Þakklæti fyrir daginn. Gott veður, snjór og stilla, fólkið mitt, og starfsfólk Landsspítala, og samfélagið í heild. Góðir dagar, göngutúrar og önnur virkni. Góður og hollur matur, áhugamál og annar yndisauki.
Ég er orðin svolítið svöng. Svöng eftir breytingu. Ég sakna fólksins úr fortíð minni. Því fólki sem ég gaf ekki nægilega mikið af mér. Ligg þó ekki hér í eftirsjá, en horfi fram á veginn. Með opnari- og jákvæðari samskipti.
Stuttur-biti-innblásturs…
Endurmat á vikunni sem er að líða…
Góðir dagar, slæmir dagar; haldast í hönd. Að getað metið það góða þegar það sýnir sig. Það fallega í lífinu, snjó-þrungin grenitré, jólaljós í glugga, nýtt ár, nýjar vonir, ný þrá eftir betrumbótum.
Að líta í eigin barm, endurmeta; sjá; skoða; flokka, greina.
Dreg eldmóð inn í nýja vinnuviku; endurtekningar og þakklæti þar fremst og helst.