Góðan dag.
Birtan birtir dagana, meir og meir, mínútu fyrir mínútu, sekúndurnar tifa…
Vorið er skammt undan, en einnig sumardagurinn fyrsti. Tilhlökkun í loftinu og fýlusvipur vestursins kveður í bili.
Takk fyrir daginn. Lífið er dýrmætt og megi bjartir dagar verða fleiri!
Jónsmessunótt kemur í hugann.
Klakksgangan er í uppáhaldi hjá mér á sumrin. Bárarhálsinn tekinn, vestanmegin frá bóndabæjum/golfvellinum. Endurnærandi ferðalag um steina og hjátrú.
Allavegana,
Þið eruð eflaust fá sem lesið þetta, en það er í lagi. Takk fyrir.
Bkv.
Sonja S.