Senn líður að sunnudegi. Það er enginn venjulegur sunnudagur á morgun, eins og hefur kannski ekki farið framhjá nokkrum manni; en það eru Páskar.
Yndisleg hátíð í alla staði. En svolítið íþyngjandi, þá sérstalega á föstudaginn langa. Hann kemur á hverju ári og alltaf jafn þungur á sálina. En það gerir ekkert til, blæs þetta ryk af mér og held ótrauð áfram.
Gott að vita að einhverjir eru að lesa þessi blogg, veitir mér innblástur til þess að halda áfram með þessi innslög á sunnudögum.
Margt er í deiglunni þessa dagana, og spennandi tímar framundan.
Er á leið minni til Köben fljótlega að leggja fyrir afleggjara í bókaformi. Mjög áhugavert, að mér finnst…
Takk takk, aftur, fyrir að lesa.
BKV: S O N J A