Morgunskrif (8)

föst. 16-5-25

JÆja,

Skolaði fyrrum morgunskrifum í klósettið. Það var vegna óheyrilegs pirrings.

Skylt reiði, en þó ekki það sama…

Það fýkur í mig….stundum.

Og þá er best að láta skrifin vera.

Alveg vera.

Er alveg sama, svosum. Má nú alveg pústa við og við, en ekki á alsaklaust fólk sem er bara að reyna að gera vinnuna sína vel.

Hvað þá, þjónustuþega…úff…!

Læri mína lexíu og held ótrauð áfram. Enginn hurðaskellir á heima hér.

Hluti af verkinu ,Hugsuður’

Collage verk með túss

4x A3/A2

Ár

Aðeins um verkið;

Verk unnið á Grundarfirði, fyrir allmörgum árum síðan. Nýtti prentara til að stækka litla skissu sem var til í safninu mínu… klippt og skorið saman, í smá hausamix. Fallegar 4 saman eða einar, sjálfstæðar.