Gjörningar

Hér á eftir koma myndir af gjörningum sem ég hef gert í gengum tíðina. Takk fyrir að fylgjast með. Ef eitthvað er ekki skýrt má hafa samband við mig í gengum vefpóst.

Nefið á þér:

Eins konar sviðsetning eða leikmynd sett upp á göngum Listaháskólans. Ljóð lesið upp af samnemanda, þar sem innsetningarvilla varð ljós. Textinn sagði nefnið á þér en ekki nefið á þér. Þetta kom þó ekki að sök. Innsetning gekk upp hvort sem var. Þrjár málaðar viðarplötur með gati í. Gervigras, lítill stigi, þráðlaus jólaséría með stórum ljósum.

-hér koma myndir-

Villumelding:

Rauð skúringafata-vatn (hálffull)- tréklemma-twisterband (regnboga)-bútar úr vatnslitaverki

Verkið var sýnt í Gallerý Ffff í Listaháskóla Íslands, haust 2018; sem var þá rekið af nokkrum fyrsta árs nemendum. Þetta var verkefni, þar sem við skiptumst á að sýna. Þessari innsetningu fylgdi ljóð sem ekki verður birt hér. Hálfpartinn einskonar gjörningur þegar ljóðið var lesið upp á opnun. Verkið fjallar um heilindi og vatnið, undirmeðvitund og djúpið. Samspil allra þessara þátta og að veiða úr undirdjúpunum einhverskonar þekkingu. Kaós og regla. Byggir á ýmsu.
Grunnmyndin sem var klippt niður í þríhyrninga. Þetta er mynd af óreiðukenndum sjó í djúpunum. Gormar spíralast endalaust áfram í ólgusjó. Verk frá 2017.

Blákráka:

Blákráka framdi gjörning, notaði innsetningu í kaffistofunni. Þessar myndir eru frá 2016- 2017. Þær eru af vinnuferlinu og innsetningunni í kaffistofunni í skólanum. Gjörningurinn var ekki ,document-araður’/skráður. Hann fjallaði um geiminn, tónlist og liti, en þetta var gert sem skólaverkefni í litafræði 2016-2017 í Myndlistaskólanum í Reykjavík.