Nýtt blogg á nýju ári

JÆJA. Árið 2021 er nú liðið. Halló 2022. Þetta er eitthvað svo óraunverulegt. Þetta hafðist! Og gott betur en það. Kláraði þriðju önnina af fjórum í Myndlistarskólanum í Reykjavík, í listmálaradeild. Ég er stolt af árangrinum. Hingað til hef ég verið svolítið hikandi í vinnunni minni, en ég get lofað ykkur að svo verði ekki á nýju ári 2022. Nýtt ár, nýjir tímar. Einskonar endurfæðing sjálfsins, uppstrekktur af nýjársheitum og fleiru. Árið leggst vel í mig. Ég næ vonandi að halda uppá mitt stórafmæli, 30 ár. Svo er planið að útskrifast með bekknum næsta vor. Halda sýningu og eitthvað fleira skemmtilegt. Þetta er bara spennandi. Ég þakka kærlega fyrir liðnar stundir, vona að þið hafið það gott og takið nýju ári fagnandi.

Síðan fer í loftið fljótlega. Þá verður hægt að skoða þetta blessaða blogg-svæði hjá mér. En þangað til þá,

peace out,

Sonja Sigurðardóttir